29.9.2010 | 23:28
Kjúklingabringur með pestó sveppa sósu
góða kvöldið gott fólk
Loksins set ég aðra uppskrift inn, kominn tími til.
þessi kjúklingaréttur er mjög einfaldur og góður, það sem þið þurfið í hann er
1 pakka af bringum
rautt pestó frá sacla (fæst í hagkaup)
hálfan pakka af sveppum
1 pela rjóma
tagliatelle spaghetti (er í bláum kössum og breiðara en venjulegt spaghetti)
parmesan ost
oregano krydd
papriku krydd
töfrakrydd frá pottagöldrum
salt og pipar
gott er að hafa baguette brauð með, hægt að kaupa frosið frá la baguette
yfirleitt 5 í pakka
brauðið er látið þiðna aðeins og síðan skorið í það rifur og þær fylltar með rjómaost með sólþurrkuðum tómötum, hvítlaukssmjöri eða bara það sem hugurinn girnist. síðan er stráð rifnum ost yfir og skellt inní ofninn.
kjúklingabringunum er skellt á pönnu og kryddaðar með salt og pipar, oreganó, töfrakryddinu og papriku kryddinu, mér finnst gott að nota vel af kryddi =)
einnig er hægt að nota það sem ykkur finnst gott en ég mæli sérstaklega með að nota oreganó í þessa uppskrift. tagliatelle spaghettíið er skellt í pott
nota yfirleitt 1/3 af pakkanum það dugir fyrir 2-3 manns.
bringurnar eru steiktar vel, því næst tek ég lítinn pott og set pestóið frá sacla í og helli rjómanum saman við og hræri vel.
sker sveppi niður, steiki á pönnu og bæti þeim útí sósuna, þeir sem vilja ekki sveppi sleppa þeim auðvitað, en mér finnst þeir gera sósuna enn betri.
brauðið er skorið í bita og tagliatelle spaghettíið sett á disk kjúllinn og sósan yfir og síðan er mjög gott að rífa ferskan parmesan ost yfir.
og síðan má ekki gleyma að hafa smá salat með ;)
verði ykkur að góðu gott fólk og njótið vel
11.9.2010 | 00:01
uppskrift af Laugardags taco nammmmm
hver vill ekki fá eitthva fljótlegt og sjúklega gott í matinn á laugardagskvöldi, mér finnst taco einmitt vera þannig matur.
Laugardagur er nammidagur hjá mörgum og þá leyfir maður sér eitthva svona smá óhollt í kvöldmatinn ;) ekki satt?
ég luma á góðri uppskrift af laugardags taco rétt sem ég ætla að deila með ykkur og mæli svo sannarlega með honum í matinn í kvöld.
það sem þið þurfið er:
1 pakki hakk (eða meira fer eftir fjölda fólks)
taco skeljar
fiesta de mexico krydd frá pottagöldrum (fæst í hagkaup)
oregano
steinselju
salt og pipar
töfrakrydd frá pottagöldrum
Stóran rjómaost
Salsa sósu
rifinn ost
papriku
kál
gúrku
bara það grænmeti sem þið viljið
maísstöngla
Doritos eða nachos flögur
sýrðan rjóma
ef þið viljið búa til ykkar eigin salsa sósu þá þurfið þið:
sirka 5 tómata
1 gulan lauk
1 rauða papriku
oregano
smá smátt saxaðan chilli
fiesta de mexico krydd frá pottagöldrum
1 msk tómatpúrra
Byrjið á að steikja hakkið og krydda það með salt og pipar, oregano, steinselju, töfrakryddinu og fiesta de mexico kryddinu. mér finnst gott að hafa matinn vel kryddaðan en gott er að smakka bara þangað til ykkur finnst bragðið gott.
setja vatn í pott og maísstönglana ofaní. ( ættu að taka sirka 20 mín að verða ready)
því næst takiði hálfan stóran rjómaost og smyrjið í eldfast mót og setjið síðan salsa sósuna ofaná og að lokum rifinn ost ofaná það og inní ofninn.
( ætti að taka svipað langan tíma og maísstönglarnir ef að þið eruð með góðan ofn)
eða ef þið viljið búa til salsa sósuna sjálf þá notiði hana í staðinn fyrir þessa tilbúnu.
skerið tómatana smátt niður, paprikuna og laukinn.
kryddið síðan með oregano, fiesta de mexico smátt saxaða chilli piparnum eða notið chilli krydd og að lokum blandiði einni matskeið af tómatpúrru vel saman við.
þetta er mjög einföld og góð salsa sósa og líka hollari, engin viðbætt aukaefni eða sykur einsog í tilbúnu salsa sósunum, en stundum er gott að eiga eina slíka ef maður er ekki í stuði til að búa til sjálfur. =)
jæja núna er maturinn að verða til eina sem er eftir er að skera niður grænmeti og setja það á stóran disk. nachos komið í skál og sýrði rjóminn kominn á borð.
mér finnst mjög gott að setja sýrða rjómann í taco skelina, grænmeti og hakk og síðan setur maður salsa dýfuna ofaná allt nammm.
nachos og maísstönglar með þessu, alveg dásamlegur Laugardags nammi matur =)
verði ykkur að góðu gott fólk og látið mig vita hvernig heppnast ;)
8.9.2010 | 19:50
Ljúffeng haustsúpa fyrir fjóra
Góða kvöldið
ég ákvað að búa til haustsúpu í kvöld. þar sem það er byrjað að kólna aðeins í veðri, trén farin að fölna og veturinn að ganga í garð.
það er ekkert betra en heit og bragðmikil súpa til að hita og næra kroppinn.
það sem þið þurfið er :
hálfur púrrulaukur
1 miðlungsstór gulur laukur
3 gulrætur
6 kartöflur
1 lítil rófa
1 haus brokkólí
salt og pipar
steinselja (fersk eða þurrkuð)
timian
2 grænmetisteningar
1/2 lítri vatn
1/2 lítri mjólk
1/2 piparost
ég byrja á að sjóða kartöflurnar,gulræturnar,rófurnar og brokkólíið í potti í sirka korter passið að hafa þetta ekki alveg soðið.
síðan flysja ég kartöflurnar,rófurnar og gulræturnar sker allt í bita og set í skál.
síðan saxa ég púrrulaukinn og gula laukinn mjög smátt og skelli honum á pönnuna, set smá salt og pipar saman við og matskeið af steinselju.
þegar laukurinn er farinn að mýkjast þá skelli ég öllu saman við kartöflunum,gulrætunum, rófunum og brokkólíinu, því næst helli ég hálfum lítra af vatbni og hálfum af mjólk útí.
þetta er látið malla í smá stund.
næst set ég tvo grænmetisteninga og matskeið af timian smá meira salt og pipar og hálfan piparostinn útí og hræri vel.
þá er bara að skella lokinu á og láta sjóða í smá tíma, mér finnst hún best þegar hún er látin sjóða soldið lengi og svo er hú auðvitað mjög góð daginn eftir =)
með þessu hef ég gjarnan gott brauð hvítlauks brauð eða útbý litlar grillaðar samlokur með salami ost og káli =)
verði ykkur að góðu gott fólk og gaman væri ef að þið gætuð bent fólki á bloggið mitt og síðan megiði alveg endilega kommenta.
ég mun bæta fleiri góðum uppskriftum reglulega inn á bloggið svo endilega fylgist spennt með =)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.9.2010 | 00:24
Einfalt og gómsætt kartöflusalat
Jæja fyrsta uppskriftin sem ég set inn er æðislegt kartöflusalat, það er fljótlegt og gott og allir geta búið það til.
það sem þarf í salatið er:
8 kartöflur (miðlungsskammtur fyrir sirka 2-3)
sýrðan rjóma með lauk og graslauk
1 stk rauð paprika
ferks steinselja má líka vera þurrkuð
1 rif hvítlaukur
sítróna
timian eða oregano
salt og pipar
þið byrjið á að sjóða kartöflurnar og þegar þær eru tilbúnar þá eru þær flysjaðar og skellt í skál síðan kældar inní ísskáp.
mér finnst ágætt að kæla þær aðeins meðan ég tek til hráefnið.
jæja næst saxiði paprikuna, hvítlaukinn og fersku steinseljuna niður
þegar kartöflurnar eru orðnar vel kældar þá takiði sýrða rjómann og blandið honum vel saman við kartöflurnar.
skellið síðan paprikunni, hvítlauknum og steinseljunni saman við og hrærið vandlega.
kryddið eftir smekk með salt og pipar og timian og að lokum kreistið sirka 1/3 af sítrínu yfir salatið.
namm þá er það tilbúið, verði ykkur að góðu.
Ég hef gert nokkrar útgáfur af kartfölusalati og þeir sem eru hrifnir af rauðlauk, þá er einstaklega gott að setja hann saman við.
einnig hef ég prófað að setja tómata útí salatið þá verður það safameira og einstaklega gott =) um að gera bara að prófa sig áfram, nota krydd sem ykkur fnnst góð og ég lofa ykkur að það mun ekki misheppnast =) njótið vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.9.2010 | 00:09
Halló gott fólk, hér ætla ég að setja inn gómsætar uppskriftir =)
halló gott fólk, hér ætla ég að luma á ljúffengum og girnilegum uppskriftum sem ég hef verið að fikra mig áfram við i eldhúsinu mínu.
Ég hef einstaklega gaman af að elda og nýt þess að gera tilraunir þegar tími gefst til.
þetta eru einfaldir réttir sem allir geta gert, og ekki væri verra að fá smá comment frá ykkur.
Ég ákvað að gera þetta bara svona til gamans og vona að þið njótið vel =)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

